152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Skipulagsleysi af ykkar hálfu krefst ekki neyðarástands af okkar hálfu. Það er sett upp ákveðin dagskrá fyrir þingið eins og hæstv. forseti vitnaði í hérna áðan, hvenær fyrsta starfsáætlun þingsins var sett til bóta. Það skiptir máli því að eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir sagði þá er takmarkaður tími í þingstörfunum og við viljum að sjálfsögðu ræða öll þau mál sem koma hingað inn í þingið. Ekkert nema sjálfsagt við það. En þegar það er brugðið út af venjulegu skipulagi er það merki um einhvers konar mistök. Mistökin hérna eru tvímælalaust þau að í fyrsta lagi hefur ekki verið farið eftir þingmálaskránni sem ríkisstjórnin sjálf leggur fram. Það er hennar mat á því hvenær málin eiga að koma inn í þingið. Næstu mistök eru síðan skipulagið á því og hvort það sé hægt að koma þeim málum bara yfirleitt í gegnum þingið og það er á ábyrgð forseta. Það er fullt af málum, við þekkjum það mjög vel, sem fara síðan þegar allt kemur til alls ekkert í gegnum þingið. Við vorum meira að segja með hæstv. heilbrigðisráðherra í 1. umr. um daginn sem dró til baka mál sem var ansi mikil gagnrýni á og hann fær ekkert nema hrós fyrir það. En það sýnir líka hversu mikilvæg 1. umr. er oft og tíðum. (Forseti hringir.) Ég ætla bara að beina því til forseta að það er á hans ábyrgð að sinna því að dagskrá þingsins sé ekki í einhverju klúðri.