152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:41]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég er í hópi þess hluta þjóðarinnar sem ber mikla virðingu fyrir Alþingi, fyrir hlutverki þess og störfum, og mér finnst fátt dapurlegra en þegar þingmenn eða hæstv. ráðherrar taka sjálfir þátt í því að tala Alþingi Íslendinga niður. Og hvað gera menn gagnvart þinginu, hlutverki þess og virðingu þegar þeir sjá sér ekki fært að taka þátt í umræðum á Alþingi? Þrátt fyrir að við séum núna með Íslandsmet í fjölda ráðherra í ríkisstjórn Íslands þá dugar það ekki til að við fáum ráðherra hérna með sæmilega mætingu í fyrirspurnatíma. Stjórnarþingmenn taka nánast engan þátt í umræðum um þau frumvörp sem ríkisstjórnin sjálf leggur fram. Hvað er það sem stjórnarþingmenn óttast? Ég verð að segja að mér finnst þingið hér vegna vinnubragða meiri hlutans vera komið í miklar og alvarlegar ógöngur og að ríkisstjórnin sé (Forseti hringir.) á sínu fyrsta ári á þessu kjörtímabili að slá allt annan og ömurlegri takt (Forseti hringir.) í nálgun sinni gagnvart Alþingi en verið hefur.