lengd þingfundar.
Herra forseti. Mig langar að ræða fundarstjórn eða kannski mælistiku forseta. Hann segir að þörf sé á lengdum þingfundum vegna þess að afar hægt hafi gengið að afgreiða mál í gegnum 1. umr. Ég fór aðeins í gegnum tölfræðina, nokkur mál sem við höfum verið að ræða hér síðustu daga. Rafrettufrumvarpið, það þurfti ekki nema fjóra klukkutíma í 1. umr. þar, í máli sem stjórnarflokkarnir létu eins og væri mjög umdeilt í þeirra hópi en sýndu kannski ekki í umræðunni. Skimanamálið, tveir tímar og 16 mínútur, þar sem er verið að lögfesta gagnasöfnun landlæknis sem hefur verið lagalegt tómarúm utan um í rúmt ár eftir skimanaklúður heilbrigðisráðuneytisins. Það er fyrst núna sem þetta kemur til þingsins. Auðvitað ræddum við það — en í tvo klukkutíma, forseti. Hversu mikið er það?
Ef forseti vill að við séum það mikið færiband, það mikil afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórnina, að við megum ekki tala í tvo klukkutíma (Forseti hringir.) um frumvörp í 1. umr. þá höfum við dálítið ólíkar skoðanir á því (Forseti hringir.) hvað telst löng umræða og hvað telst eðlileg umræða.