lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Mér finnst, sem nýjum þingmanni, vinnutíminn hér á Alþingi mjög sérstakur og skipulagsleysið nánast algjört. Ég get tekið dæmi: Ég mælti fyrir nefndaráliti minni hluta í fjárlaganefnd milli klukkan 1 og 2 aðfaranótt 22. desember — eða var það 23. desember? Það var fundarstjórn forseta um tíuleytið um kvöldið og þá var sagt að það væri bara miður dagur. Svo kom annar hæstv. ráðherra og sagði að það væri aumingjaskapur í nýliðum að vera að kvarta undan þessu. Ég var ekki að kvarta sjálfur. En það að vera að gera þetta um nótt er algjört hneyksli og fyrir neðan virðingu Alþingis.
Varðandi vinnubrögðin þá finnst mér frumvörpin sem stjórnin hefur verið að leggja fram einfaldlega illa unnin og illa ígrunduð. Það hefur komið fram í 1. umr. Ég get tekið tvö dæmi: Frumvarp um leigubílaakstur var dregið til baka eftir 1. umr. Það var út af gagnrýni sem kom fram við 1. umr. Það var frumvarp sem var bara hrátt, (Forseti hringir.) það voru algjör drög. Annað frumvarp er um stjórn Landspítalans. Saga stjórnar Landspítalans er þannig: 1990 nefnd um stjórnarefni, (Forseti hringir.) síðan kom ráðgjafarnefnd, síðan kom fagráð og núna á stjórnin að koma aftur. (Forseti hringir.) Þannig eru vinnubrögðin. Það er hægt að semja um þennan vinnutíma, það er mjög einfalt að gera það. Það þarf að setjast niður og semja um þau mál sem fá framgang hérna, (Forseti hringir.) og það er stjórnarandstaðan alveg örugglega tilbúin að gera.