152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:52]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að lýsa undrun minni á því hvernig menn umgangast og koma hugsun sinni á framfæri um hið lýðræðislega ferli sem á að fara fram hér í þessu húsi, ekki síst í orðum hæstv. fjármálaráðherra hér áðan. Einhver gorgeir um það að þegar hann hafði verið í stjórnarandstöðu þá hafi hann ekki verið að kalla eftir einhverjum málum frá ríkisstjórninni og þar fram eftir götunum. Þetta segir okkur allt um það hvaða virðing er borin fyrir því starfi sem hér er, á öllum stigum þeirra mála sem hingað koma. Það er mér að meinalausu og okkur í stjórnarandstöðunni að mál frá ríkisstjórninni komi ekki og við ræðum bara mál stjórnarandstöðunnar. En það er sett upp dagskrá, það er boðað að hingað komi mál frá ríkisstjórninni. Þau viljum við að sjálfsögðu ræða og köllum eftir því, bæði til að hafna þeim og eftir atvikum samþykkja sum, en ekki síst til að laga vankanta á mörgum þeirra sem hingað koma, oft reyndar hálfköruð og koma seint. Sú beiðni sem hér liggur fyrir og við erum að fara að greiða atkvæði um er algjörlega út úr öllu korti í því samhengi sem verið hefur í störfum þingsins að undanförnu.