152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við tölum um virðingu Alþingis og við tölum um að það sé verið að taka þátt í umræðum. Ef frá eru taldir tveir ráðherrar af 12 þá sjást þeir varla hér nema þegar um atkvæðagreiðslur er að ræða eða óundirbúnar fyrirspurnir. Það sem hæstv. fjármálaráðherra ákveður að kallað leikrit og hinir hæstv. ráðherrarnir hlæja að er nákvæmlega ekki það sem þessir hinir tveir ráðherrar hafa verið að gera, þ.e. að hlusta og taka þátt. Það er það sem við viljum sjá hér.

Ég tek líka algerlega undir með hv. þingmanni sem talaði um að hér þurfi að semja. Hér þarf að semja um það og tala meira saman um það hvernig við ætlum að vinna saman hérna á Alþingi vegna þess að þetta skítkast sem á sér stað núna er ekki það sem virðing Alþingis stendur fyrir. Og þar sem hæstv. forseti hvetur mig til að gefa honum góð ráð (Forseti hringir.) þá langar mig að gefa þau ráð að taka nú hlé áður en atkvæðagreiðsla fer fram og semja.