152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:05]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hættum að væla og förum að vinna, sagði þingmaðurinn. Þá veit maður að athugasemdir stjórnarandstöðu við vinnubrögð eru kallaðar væl. Ég er nú eins og margir aðrir nýr hérna og er að læra á þetta vinnulag sem hér er ástundað. Mér þótti það ekki óeðlilegt strax eftir áramótin að við værum hér að taka mál á dagskrá án fyrirvara af því að það voru mál sem voru þess eðlis að það þurfti að koma þeim í gegn bara til hjálpar þjóðinni, en að það sé verið að troða málum inn sem áttu að vera komin með miklu meiri fyrirvara, eins og við vorum að gera rétt eftir áramótin, það skil ég ekki. (Forseti hringir.) Ég held að við hljótum að hafa rétt til að gera athugasemdir þegar verið er að troða málum ofan í kokið á okkur og við eigum ekki að hafa neina skoðanir á því.

(Forseti (BÁ): Forseti vill taka það fram að hann ætlar sér ekki með nokkru móti að takmarka umræður þingmanna. Hann er aðeins að leggja til að hér verði lengdur þingfundur þannig að það sé rýmri réttur til þess að koma að málum.)