152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:10]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er lykt af yfirgengilegum hroka. Ég vildi bara halda því til haga. Hættum að væla og förum að vinna, með leyfi forseta, er það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði hérna áðan. Það væri áhugavert að sjá stjórnarliðana vinna. Það væri áhugavert að heyra hvers vegna stjórnarliði, sem hér kallar eftir því ólmur að fá að komast í ræðu um stjórnarmál en hann vissi bara ekki hvenær, hefur aðeins mætt í ræðu í einu stjórnarmáli það sem af er vetri, hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Hann bíður hérna ólmur eftir að komast að í umræðunni en við hleypum honum ekki að. Eftir þessa forsögu, er einhver von til þess að hann taki þátt í einhverjum umræðum frekar en aðrir hv. stjórnarþingmenn hér? Við erum auðvitað bara að kalla eftir lýðræðislegri umræðu, virðulegi forseti, en ekki að fólk sitji hér eins og einhverjir málleysingjar og láti sig hverfa inn á milli og saki okkur, sem hér tökum þátt í lýðræðislegri umræðu, um að vera letingjar og aumingjar sem nenni ekki að vinna. Þetta er náttúrlega með ólíkindum. Fólk ætti að spyrja sig: Hverjir eru letingjarnir og aumingjarnir í þessum sal? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)