lengd þingfundar.
Herra forseti. Ég er ekki ný á þingi og ég hef séð þetta gerast áður. Þegar vinnubrögð ríkisstjórnar eru svo slæm að hrúga inn málum nokkrum vikum áður en þingi á að ljúka þá gerist þetta. Þau óska eftir lengri þingfundartíma til að reyna að ná málunum sínum í gegn. Þetta eru slæm vinnubrögð. Það er lykt af þessum vinnubrögðum. Það er vond lykt af þessum vinnubrögðum og þau eru augljóslega slæm. En hvað gefa þau okkur í stjórnarandstöðunni? Þau gefa okkur upp í hendurnar betri stöðu til að fá okkar framgengt og ná okkar áherslum fram í þeim málum sem þó fara í gegn og það skulum við í stjórnarandstöðunni nýta okkur vel.