152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari valdníðslu virðulegs forseta sem hvorki sýnir sáttavilja né það að vilja semja um hlutina. Ég krefst þess að allir þeir sem segi já við lengdum þingfundi sitji hér allan þingfundinn til loka og taki þátt á fundinum, ekki inni í kaffistofu að borða kökurnar heldur sitji hér inni, hlusti og taki þátt og það felur í sér hæstv. ráðherra líka.