lengd þingfundar.
Herra forseti. Því er ranglega haldið fram að það þurfi langan þingfund til að taka á einhverjum gríðarlega umfangsmiklum umræðum í 1. umr. mála hér síðustu daga. Við erum að tala í einn eða tvo eða þrjá klukkutíma í hverju máli. Þetta er ekki mikið. Þetta er hinn lýðræðislegi háttur, að ræða hluti hér í þessari stofu — nema stjórnarliðar skrópa, taka ekki þátt í lýðræðislega samtalinu, og það er slæmt. Sú skekkja er mjög slæm. Ég átta mig samt ekki á því, herra forseti, af hverju þið í stjórnarliðinu eruð að panika svona snemma? Við erum ekki einu sinni komin að framlagningarfresti þingmála. Af hverju þurfið þið að keyra dagskrána inn í kvöld til að sópa upp málahala? Hvaða óskapnaður er á leiðinni í gegnum ríkisstjórn inn í þennan sal sem þarf að rýma fyrir? Til hvers er þetta, forseti?