152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[12:37]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Það er kannski skiljanlega kominn hiti í fólk, enda voru engin stjórnarmál hér í margar vikur. Það er búið að vera fullt af tíma til að leggja fram stjórnarmál og það kom ekki neitt. Svo koma allt í einu stjórnarmálin, bara allt, allt of seint eins og gerist alltaf. Kannski er hluti af okkar viðbrögðum mótmæli við þessu fúski því að þetta býður upp á fúsk og ólýðræðisleg vinnubrögð og það er það sem stingur.

Tíma þingsins er sóað í 1. umr. um stjórnarmál sem eru illa unnin og dregin til baka. Það er ekkert samráð og það er enginn vilji til þess að eiga samtal eða samráð við stjórnarandstöðuna. Það hefur ekki verið óeðlileg umræða um nein mál af hálfu stjórnarandstöðunnar hingað til, ekki nein. Ef forseti stæði með þinginu og vönduðum vinnubrögðum þá væri hann að beita svipunni — því að já, lengd þingfunda er svipa og hún er hönnuð til að þreyta þingmenn til hlýðni. Það er bara þannig. Ef forseti stæði með þinginu þá væri hann að beita svipunni í átt að meiri hlutanum sem er bara ekki að standa sig og kemur ekki með málin nægilega snemma (Forseti hringir.) og ekki nægilega vönduð fyrir umfjöllun þingsins. Þannig að auðvitað er kominn hiti í fólk. (Forseti hringir.)

Ég segi nei við lengri þingfundi og mér þykir mjög leiðinlegt að forseti hafi ekki hugsað til þess að eiga raunverulegt samráð (Forseti hringir.) og samtal við þingflokksformenn áður en hann tók þessa ákvörðun.

(Gripið fram í: Heyr, heyr.)