152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[21:38]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Á tíunda áratugnum, í upphafi hans, um 1993, var heildar „budget“ utanríkisþjónustunnar og þróunarsamvinnunnar 1.300 milljónir íslenskra króna, þar af heilar 3 milljónir eyrnamerktar menningarmálum, sum sé 0,3% af heildar „budgeti“ ráðuneytisins á þeim tíma. Þrjár meginstoðir utanríkisþjónustunnar samkvæmt lögum eru pólitísku efnahagsmálin sem sendiherra jafnan sinnir, viðskiptamálin sem viðskiptafulltrúi jafnan sinnir og svo menningarmálin sem menningarfulltrúi eða annar diplómat sinnir. Nú hafa framlög til utanríkisþjónustunnar í tölum, auðvitað að teknu tilliti til allra hluta, sirka tuttugufaldast ef ekki meir. Í samanburði við það sem ég nefndi hér áðan hefur heildarprósentan til þessarar þriðju stoðar lækkað, kannski um helming. Í ljósi þess að hugverkin og menningin eru sennilega það sem Íslendingar eru þekktastir af af öllu sem við höfum aðhafst hér þá velti ég fyrir mér hvort hæstv. utanríkisráðherra gæti verið mér sammála um að það mætti eilítið gefa í þennan þriðja og minnsta lið, svona í fjárhagslegu samhengi talið, þannig að við getum eflt þá starfsemi, þá mikilvægu starfsemi utanríkisþjónustunnar, landi og þjóð til heilla og listafólki öllu á Íslandi.