152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:34]
Horfa

Aðalsteinn Haukur Sverrisson (F):

Virðulegi forseti. Við endurskoðun á almannatryggingakerfinu þurfum við að tryggja að örorkulífeyrir fylgir áfram lágmarkslaunum. Við þurfum að einfalda lífeyriskerfið töluvert en regluverkið er frumskógur í núverandi mynd. Afnema þarf skerðingar og leggja þarf inn hvata til starfsendurhæfingar. Það eru margir einstaklingar sem treysta á almannatryggingar en eru gríðarlega öflugir og geta skilað sínu til samfélagsins. Við eigum að grípa þa og hvetja til vinnu og virkni, m.a. með notkun endurskoðaðs almannatryggingakerfis. Vinna og virkni, það er markmiðið og það er gerlegt.

Frú forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að það er augljós brotalína á fasteignamarkaði hér á landi. Þessu eigum við að bregðast við og ég fagna því að hæstv. innviðaráðherra hefur farið í aðgerðir í þágu þess. Húsnæðisvandinn snertir marga og þá sérstaklega þá verst stöddu. Flestir þeir sem búa við lág kjör búa í mjög skuldsettu húsnæði og greiða háa leigu sem hækkar í sífellu. Það er mikilvægt að við mætum þeim sem standa verst með tilliti til húsnæðis. Sem dæmi um aðgerðir á húsnæðismarkaði þurfum við áfram að fjölga leiguheimilum fyrir öryrkja og fatlað fólk í almenna íbúðakerfinu. Þó vil ég einnig benda á að þar er þörf á samvinnu sveitarfélaga og ríkisins. Á höfuðborgarsvæðinu hafa sveitarfélög brugðist í uppbyggingu fasteigna. Í því samhengi horfi ég til höfuðborgarinnar en þar þarf meiri uppbyggingu en meiri hluti borgarstjórnar hefur kveðið á um. Þörf er á jafnvægi og skynsemi í þéttingu byggðar og uppbyggingu nýrra hverfa. Tækifærin eru til staðar og ég vona innilega að borgarstjórn grípi þau föstum tökum, sem þau hafa vanrækt á síðustu árum.