152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:32]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég er mikill stuðningsmaður þess að selja Íslandsbanka. Mér fannst það mikilvægt að ríkið ætti ekki tvo af þremur viðskiptabönkum í landinu. Þess vegna hef ég stutt það ferli eindregið. Mér fannst takast ofboðslega vel til í fyrsta útboðinu þegar stór hluti Íslendinga hafði tækifæri til að setja sparnað sinn í fjárfestingu í Íslandsbanka. Ég held líka að það sé mikilvægt fyrir hlutabréfamarkað á Íslandi að almenningur hafi tök á að fjárfesta í eignum eins og Íslandsbanka. Nú sit ég í hv. fjárlaganefnd og fékk þar af leiðandi allar þær upplýsingar og gögn sem okkur voru send varðandi seinni hlutann. Ég verð að viðurkenna að ég er svekkt þegar ég les lista yfir þá sem hafa fengið að kaupa í þessu ferli. Ég stóð í þeirri meiningu að við værum fyrst og fremst að leita eftir stórum og öflugum fjárfestum sem ætluðu að vera þarna til lengri tíma. Þegar ég fer svo að lesa gögnin þá átta ég mig á því að það er ekkert sem stendur þar beinum orðum að svo eigi að vera. Ég naga mig sjálfa í handarbökin fyrir að hafa ekki spurt þeirrar spurningar og ég ímynda mér að við séum fleiri í þessum sal sem höfum gert það. Ég er engu að síður sannfærð um að það sé rétt ákvörðun að selja Íslandsbanka. Ég er líka sannfærð um það, og það er mikilvægt að við þingmenn höldum því til haga, að regluverkið í kringum bankakerfið okkar er gott og hefur tekið miklum breytingum á síðasta áratug. Það er hárrétt ákvörðun hjá fjármálaráðherra að óska eftir því að Ríkisendurskoðun endurskoði þetta ferli vegna þess að það er traust og trúverðugleiki sem skiptir mestu máli. Þegar við seljum ríkiseignir þá þarf það ávallt að vera í gagnsæju, sanngjörnu og réttlátu ferli og því miður höfum við ekki fengið svör við öllum okkar spurningum. Það er því nauðsynlegt að fjárlaganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og þingið allt fái svar við þeim spurningum sem út af standa.