störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fyrr í vikunni lagði ég fram ósk um minnisblað frá Bankasýslunni um Íslandsbankasöluna sem var afgreidd úr fjárlaganefnd. Ég ætla að óska eftir uppfærslu á minnisblaðinu í dag. Í fyrsta lagi þarf ítarlegri svör um 700 millj. kr. kostnað við útboðið. Það þarf ekki annað en að skoða upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu, um kostnað í skráningarlýsingum í útboðum sem hafa verið haldin á Íslandi, til að sjá að þetta er óeðlileg tala. Í öðru lagi tala hæstv. ráðherrar og Bankasýslan um að öllum fagfjárfestum hafi þurft að hleypa að. Þetta var lokað útboð og það er ekki rétt. En að því sögðu, þrátt fyrir umræddar almennar reglur, er enn óljóst hvernig valið var úr fjárfestum. Fjármálaeftirlitið þarf að kanna hjá öllum fjármálastofnunum hvaða aðilar fengu hækkun úr almennum fjárfesti í fagfjárfesti nokkrum vikum fyrir útboðið, tóku þátt í útboðinu og fengu úthlutað. Í þriðja lagi þarf að fá lista yfir áskriftir sem bárust og bera hann saman við lista yfir aðila sem fengu hlut til að sjá hvernig skerðingar á tilboðum voru, hvort það hafi verið geðþóttaákvörðun hjá umsjónaraðila eða Bankasýslunni hverjir fengu hlut. Bankasýslan heldur á eignarhlut ríkisins í bankanum. Í ljósi þess má gera ráð fyrir að forsvarsmenn hennar hafi verið viðstaddir þegar úthlutun var ákvörðuð. Hér kom út hvítbók um fjármálakerfið, sem stjórnarformaður Bankasýslunnar stýrði sjálfur, þar sem lykilatriði var traust á bankakerfinu. Það að hæstv. ráðherrar hafi ekki beitt sér fyrir því að framkvæmdin og salan stuðlaði að trúverðugleika í bankakerfinu er til marks um algert forystuleysi og vanhæfni.