152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.

[12:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil fylgja eftir þeirri ósk til forseta um að það verði aukafundur með óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra því að síðan nokkrir skandalar voru af hálfu Framsóknarflokksins í Bændahöllinni þá hafa þeir ráðherrar ekki sést hér. Ég tel mikilvægt að við fáum tækifæri til að spyrja formann Framsóknarflokksins mikilvægra spurninga og það verði gert á morgun. Ég vil líka vekja athygli á því að sá ráðherra Framsóknarflokksins sem var hér og átti að sitja fyrir svörum svaraði ekki einföldum spurningum, skýrum spurningum sem til hans var beint af hálfu ýmissa þingmanna. Ég beini þessu til hæstv. forseta. Enn og aftur vil ég undirstrika mikilvægi þess að við fáum rannsóknarnefnd í þetta mál. (Forseti hringir.) Því meira sem þingmenn og ráðherrar tala, hvort sem er Sjálfstæðisflokksins eða Framsóknarflokksins og vel að merkja þá hafa fáir frá Vinstri grænum talað hér í dag, (Forseti hringir.) því mikilvægara er að við fáum rannsóknarnefnd sem getur velt við hverjum steini í þessu stóra og mikla máli sem byggir á því að á endanum að við reynum að undirbyggja (Forseti hringir.) traust til þjóðarinnar. Það er okkar hlutverk hér á þingi.