afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.
Frú forseti. Það er dálítið hættulegur leikur hjá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar að fela sig alltaf þegar skandalar ríða yfir, að svara ekki fjölmiðlum, að mæta ekki í þing, að láta sig hverfa og reyna að bíða skandalinn þannig af sér. Það er hættulegt þegar ríkisstjórnin fremur svo marga skandala að þeir eru viðstöðulausir. Þess vegna höfum við ekki séð formann Framsóknarflokksins hér í húsi síðan hann gerði skandal á búnaðarþingi og nokkrir hafa orðið í millitíðinni. Þess vegna mætir menntamálaráðherra ekki fyrr en núna að svara fyrir ummæli sem féllu fyrir páska — eða svara, hún skilur nú eftir fleiri spurningar en svör í rauninni. Ég vil bara ítreka þá ósk sem hefur komið fram að áður en við förum í annað tveggja vikna hlé, sem ráðherrar geta notað til að fela sig fyrir skandölunum sínum, verði settur fundur með óundirbúnum fyrirspurnum þar sem formaður Framsóknarflokksins mætir þingheimi eins og maður.