málefni innflytjenda.
Herra forseti. Ég hef í umræðum um þetta mál gert miklar athugasemdir við kostnaðarmat frumvarpsins og það er ástæða þess að við óskum eftir því að málið gangi til nefndar milli 2. og 3. umr., að ákveðnir þættir verði leiddir þar út þannig að okkur þingmönnum sé ljóst hver áhrifin af frumvarpinu verða. Það kom hér upp þingmaður í fundarstjórn forseta rétt áðan sem vildi tengja þetta einhverjum rasískum málum. Það er fráleitt. Við erum eingöngu að gera athugasemd við það að kostnaðarmat frumvarpsins sé jafn illa unnið og raunin er. Hv. þingmaður, sem kom hér upp áðan, talaði um að hann hefði rembst eins og rjúpan við staurinn við að koma þessu máli í gegn en hv. þingmaður hefur, a.m.k. í þetta skiptið sem málið er lagt fram, rembst svo mikið að þingmaðurinn hefur haldið samanlagt engar ræðu í 1. og 2. umr. þessa máls. En ég vildi bara halda þessu til haga og ástæða þess að við hjá Miðflokknum óskum eftir því að málið gangi til nefndar er kostnaðarmat en ekki önnur efnisatriði málsins, hvað þá vísun varðar.