152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[21:45]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Myndi Ísland sökkva í djúpan sæ ef við hættum að beita Dyflinnarreglugerðinni? Ég efast stórlega um það. Ég held alla vega að það sé alveg ljóst að það er alger óþarfi að beita henni með þessum vélræna hætti sem hefur tíðkast hérna undanfarin ár og áratugi. Við þurfum líka að muna að þetta er ekki algild regla, þetta er heimild í lögum. Það þarf að beita reglugerðinni af ákveðnum fyrirsjáanleika en ekki þannig að henni sé beitt markvisst til að halda sem flestum frá Íslandi, og það jafnvel algerlega án tillits til þess hvernig staðan er í heiminum, annars staðar í Evrópu. Við þurfum að taka þátt með öðrum Evrópuríkjum í að axla þessa sameiginlegu ábyrgð á því að taka á móti flóttafólki og það verður ekki gert með því að nýta Dyflinnarreglugerðina við hvert tækifæri til að vísa fólki úr landi. Það verður heldur ekki gert með þessari herðingu á útlendingalögum sem birtist í þessu ljóta frumvarpi sem við erum að ræða í dag.