störf þingsins.
Virðulegur forseti. Kjaragliðnun í almannatryggingakerfinu er um 40%. Það þýðir að það vantar um 120.000 kr. hækkun til öryrkja og aldraðra í hverjum mánuði. Ef persónuafsláttur hefði fylgt launavísitölu væru greidd út um 350.000 kr. lífeyrislaun skatta- og skerðingarlaust eins og Flokkur fólksins hefur barist fyrir. Það kostar um 720 milljónir að greiða 8.000 ellilífeyrisþegum 90.000 kr. eingreiðslu, sem er nær það sama og söluþóknun fyrir síðustu sölu Íslandsbanka. Ef við tökum allan þann kostnað sem farið hefur í sölu á bankanum, 2,1 milljarð, þá gætum við gefið 24.000 manns 90.000 kr. eingreiðslu strax.
Aldraðir í almannatryggingum á Íslandi hafa ekki fengið krónu frá ríkisstjórninni allt Covid-tímabilið. Nei, því að réttlæti handa þeim er ekki til í orðabók þessarar ríkisstjórnar því hún er upptekin við allt annað, t.d. bankasölu til útvalinna og að gera með því hina ríku enn ríkari. Um 200 fatlaðir einstaklingar eru fluttir nauðugir og vistaðir á hjúkrunarheimili, sem er ekkert annað en andleg og líkamleg pyndingarstarfsemi. Eftirspurn og þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi eykst ár frá ári og bið eftir þjónustu er allt of löng og veldur fólki varanlegum skaða á sál og líkama. Aldraður einstaklingur með 450.000 kr. kostnað vegna læknisþjónustu á síðasta ári sem er kominn í 350.000 kr. kostnað á þessu ári spyr hvernig hann eigi að fara að á lágmarkslífeyri. Kvíði, þunglyndi, þreyta, vonleysi, svefnleysi, svelti og lyfjaskortur er meðal þess sem hrjáir fólk í almannatryggingakerfinu. Aðstandendur þessa fólks eru að kikna undan álagi og það gengur iðulega mjög nærri heilsu þeirra. 13 ára lögbroti með eignaupptöku á sérstöku uppbótinni í almannatryggingakerfinu verður bara skilað til baka fyrir fjögur ár til þeirra sem brotið var gróflega á.
Þeir verst settu í bútasaumaða almannatryggingakerfinu eru greinilega breiðu bök þessarar ríkisstjórnar og því best fallnir til að brjóta mannréttindi á og fá ekki að njóta réttlætis eða sanngirni. Nei, það er bara ein lausn hjá þessari ríkisstjórn á öllu þessu og það er að endurskoða almannatryggingakerfið án þess að setja krónu inn í það. Skilaboð ríkisstjórnarinnar til fólksins í almannatryggingum eru skýr: Herðið sultarólina, ykkar tími er ekki kominn.