152. löggjafarþing — 83. fundur, 1. júní 2022.
stéttarfélög og vinnudeilur.
272. mál
Virðulegi forseti. Ég er á nefndarálitinu í þessu máli en ég mun vera á gulu í 2. og 3. gr. Ég styð þetta mál og fagna því að það skuli aftur fara til velferðarnefndar og vera tekið fyrir þar á ný. Við verðum auðvitað að svara þeirri spurningu hvort við séum að fara eftir áliti GRECO og séum að gera þetta rétt. Það er auðvitað lágmarkskrafa og þetta þurfum við að fá á hreint. Ég fagna því að málið fari aftur inn en verð á gulu í 2. og 3. gr.