heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég hef eftir töluverða umhugsun ákveðið að vera með á þessu máli þó að mér þyki í sjálfu sér margt óljóst um hvað þessari stjórn er ætlað að gera, eitthvað sem ekki er gert núna, og hvaða vandamál hún á að leysa. Ástæðan fyrir því að ég kem hérna upp er sú að mig langar að gera orð tiltölulega nýráðins forstjóra Landspítalans að mínum þar sem hann segir að skipulagsóreiða hafi verið í heilbrigðisþjónustu, einkum á höfuðborgarsvæðinu, í mörg ár og að það hafi legið fyrir í mörg ár að verkefnum spítalans myndi fjölga og að vandinn sé grafalvarlegur og gríðarstór.
Skipulagsóreiða í heilbrigðismálum. Þetta er verkefnið sem blasir við og þarf að leysa. Þetta gerir stjórn Landspítalans ekki. En það er til stjórn yfir heilbrigðismálum landsins. Það er ríkisstjórn Íslands og ég ætla að nota tækifærið og hvetja hana til dáða í þessum málum en ekki ýta þeim yfir á stjórn Landspítalans.