152. löggjafarþing — 88. fundur, 9. júní 2022.
breyting á starfsáætlun.
Forsætisnefnd, í samráði við formenn þingflokka, hefur ákveðið að gera þá breytingu á starfsáætlun að föstudagurinn 10. júní verði nefndadagur, en þann dag var gert ráð fyrir þingfrestun samkvæmt starfsáætlun. Nú liggur fyrir að þinghald mun standa eitthvað lengur. Forseti Alþingis mun því, eins og áður við slíkar aðstæður, skipuleggja þinghaldið eftir þörfum í samráði við formenn þingflokka, en gert er ráð fyrir að þingfundir í næstu viku hefjist almennt kl. 10.30.