152. löggjafarþing — 88. fundur, 9. júní 2022.
kosning ríkisendurskoðanda skv. 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára frá 9. júní 2022.
Ég lýsi því Guðmund Björgvin Helgason réttkjörinn ríkisendurskoðanda frá og með deginum í dag og til næstu sex ára. Fyrir hönd okkar alþingismanna óska ég honum velfarnaðar í starfi og við væntum að sjálfsögðu góðs samstarfs við nýjan ríkisendurskoðanda.