aðgerðir til að minnka halla ríkissjóðs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég er henni sammála um stuðning við hugverkageirann en ég átta mig ekki alveg á því að standa fyrir aðgerðum sem auka spennu á sama tíma og verið er að standa fyrir aðgerðum sem eiga að minnka spennu. Ég næ ekki alveg utan um hvað er verið að fara.
Virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af stöðu heimilanna í landinu. Staða heimilanna fer versnandi með degi hverjum. Vextir halda áfram að hækka, afborgunarbyrði lána eykst um tugi þúsunda í hverjum mánuði. Fólk er farið að veigra sér við að kaupa í matinn, eldsneytisverðið er í hæstu hæðum og ég sé ekki að verið sé að horfa til einhverra aðgerða til að styðja við þessa hópa þrátt fyrir að 3% hækkun í tilfærslukerfunum hafi verið boðuð í síðustu viku, en þá var fólk á atvinnuleysisskrá skilið eftir. Ég spyr bara hæstv. forsætisráðherra: Hvernig á að bregðast við þessari stöðu? Hvað ætlar forsætisráðherra að gera til að styðja við fjölskyldurnar í landinu?