jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem inniheldur margt gott en því miður er þetta mál af þeim toga sem einkennir þessa ríkisstjórn um of. Þótt lýsingarnar á áformunum séu góðar þá er ekki víst að áhrifin verði þau sömu. Raunar hef ég verulegar áhyggjur af hver áhrifin geta orðið. Eins og þingmenn Miðflokksins ræddu nokkuð ítarlega í 1. umr. um þetta mál — og ég heyrði mjög góðar ræður frá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni í 2. umr. — snúa áhyggjurnar að því að með því að fjölga þáttum sem þarf að nefna sérstaklega megi gagnálykta um að aðrir séu ekki verndaðir. En það sem er miklu stærra áhyggjuefni er að með þessu frumvarpi er lagt til bann við gagnrýni á ákveðna lífssýn, ákveðnar skoðanir. Alþingi getur ekki leyft sér að leiða í lög bann við gagnrýni. Því leggst ég gegn þessu frumvarpi.