152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

168. mál
[12:41]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við í Flokki fólksins höfum fundið að þessu frumvarpi og sérstaklega hv. þm. Eyjólfur Ármannsson. Hann bendir á að ýmsir vankantar séu á frumvarpinu og að vafi sé á því hvort við erum aftur að taka upp bann við guðlasti. Það virðist vera mun fleira sem er að í þessu máli og ég held að það væri vel til fundið að vísa málinu aftur í nefnd og reyna að betrumbæta það. En eins og staðan er verður þingflokkur Flokks fólksins á gulu.