jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Forseti. Ég hef verið öflugur talsmaður þess að leiða þessi lög í gildi en mér finnst þó mikilvægt að árétta ákveðnar athugasemdir sem við höfum við málsmeðferðina og við lögin eins og þau eru í dag. Markmið laganna um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna er að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna á öllum sviðum samfélagsins utan vinnumarkaðar. Í framkvæmd hafa þessi lög reynst gagnslítil við að vinna gegn mismunun á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna, það sést bara á þeirri málafæð sem er þarna, hvað þetta nær litlum árangri. Lögin í núverandi mynd hafa þess vegna ekki náð markmiði sínu og gagnsemi þess að bæta við fleiri mismununarþáttum, áður en úr því er bætt, er þar af leiðandi óljós. Þar að auki er það óskýrt og við höfum áhyggjur af því að með innleiðingu þessa frumvarps sé verið að leiða aftur í lög bann við guðlasti sem þetta þing hefur afnumið. Það er eitthvað sem við teljum mikilvægt að líta til við afgreiðslu þessa máls. Við viljum vissulega bæta réttindi og vernda réttindi allra hópa hér á Íslandi, það er leiðarstef Pírata í allri sinni vinnu, en við teljum mikilvægt (Forseti hringir.) að rétt sé að því staðið og það verði ekki til þess að takmarka tjáningarfrelsi og réttindi annarra.