störf þingsins.
Herra forseti. Greiningardeild Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði. Verðbólga síðustu 12 mánaða mældist í maí síðastliðnum 7,6% og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars árið 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði. Ég setti þetta í samhengi við sjálfan mig en ég er á leigumarkaði. Frá áramótum hefur húsaleiga mín hækkað um 10% en það þykir víst ekkert mikið og kannski bara ansi vel sloppið. Samt sem áður er þetta umtalsverð fjárhæð fyrir mig því að ég er öryrki og um síðustu mánaðamót þá greiddi ég 62% af ráðstöfunartekjum mínum í húsaleigu. Síðan greiddi ég 3,5% af mínum tekjum til lífsnauðsynlegra lyfjakaupa. Sem sagt, 65,5% í leigu og lyf. Þá á eftir að greiða fyrir hita og rafmagn og síma og ekki skal gleyma matarinnkaupunum.
Ég valdi mér ekki það hlutskipti að verða öryrki með öllu sem því fylgir. Nei. Ef ég hefði haft val þá hefði ég valið mér að vera heill heilsu, laus við verki og vanlíðan og því megið þið hv. alþingismenn trúa.