152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:15]
Horfa

Kári Gautason (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég ætla ekki að vera með svona yfirlýsingar um sinnaskipti en hér eru stigin varfærin skref til breytinga á áfengislögum og málið hefur tekið mjög jákvæðum breytingum í nefndinni. Nú er til að mynda kveðið á um að setja skuli reglugerð með magntakmörkunum. Það tel ég ákaflega mikilvægt. Sömuleiðis eru skilaboð í nefndarálitinu um lýðheilsumat og um hvers skuli horfa til varðandi opnunartíma o.fl. Því tel ég þetta vera ágæta málamiðlun og þakka fyrir samstarfið í nefndinni.