153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .

[12:03]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Það blasir alltaf skýrar og skýrar við að aðgerðir í loftslagsmálum eru stærsta hagsmunamál komandi kynslóða. Síðastliðið sumar sáum við merkin allt í kringum okkur. Í Evrópu voru miklir þurrkar, þeir mestu í 500 ár. Afleiðingarnar voru uppskerubrestur, fiskidauði, áhrif á vöruflutninga. Ríkisstjórn Íslands hefur sett sér metnaðarfull markmið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og hæstv. forsætisráðherra hefur talað um það, ekki síst á alþjóðavettvangi, að Ísland sé forysturíki í þessum efnum. Ísland á að vera fyrsta ríkið sem er óháð jarðefnaeldsneyti og á að ná kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum ekki seinna en árið 2040. Það er stefnt að því fyrir árið 2030 að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% frá því sem var árið 2005. Í heil fimm ár hefur hæstv. forsætisráðherra talað um markmið Íslands og um Ísland sem forysturíki á sviði loftslagsmála. En engu að síður er staðan sú að hingað til hafa legið fyrir markmið en aðgerðirnar til að ná fram þessum markmiðum hefur vantað. Hæstv. umhverfisráðherra hefur farið af stað með krafti og talað fyrir skýrum markmiðum en hann hefur líka sagt að eigi þau að nást fram þurfi að herða róðurinn verulega. Ég hlakka til að fylgjast með því með hvaða hætti það á að gerast en ég sakna þess, ég viðurkenni það, að sjá enn engar tímasettar aðgerðaáætlanir, engin mælanleg markmið. Ég nefndi hér fyrr í dag áhyggjur mínar af fjármögnuninni því þetta þrennt þarf að haldast í hendur og þarf að fara saman eigi árangur að nást. Ég minni á umsagnir loftslagsráðs og einkunnarorðin þar eru „óljós og ófullnægjandi“, það er dómurinn um aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Græn skýrsla umhverfisráðherra sjálfs talar um að ríkisstjórnin hafi ekki fylgt eftir markmiðum sínum um orkuskipti með skýrum ákvörðunum um orkuöflun. Ungir umhverfissinnar hafa gefið ríkisstjórninni falleinkunn í loftslagsmálum. Birtan liggur í því að þessum markmiðum er hægt að ná fram ef ríkisstjórnin fer að komast upp úr þeim fótsporum að tala um markmið án þess að leggja fram tímasettar aðgerðir, mælanlegar aðgerðir, fjármagnaðar aðgerðir. Ég ætla að fá að ljúka fyrri ræðu minni hér með brýningu til umhverfisráðherra um að huga að fjármögnuninni.