153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

sjúklingatrygging.

211. mál
[16:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það að það er svolítið skrýtið að vera að setja sérlög. Mér finnst eiginlega svolítið apalegt að setja sérlög bara um apabólusetningu. Það er eins og þetta sé ekki alveg í samhengi vegna þess að auðvitað á þetta að gilda um allt, allar bólusetningar. Við eigum bara að hafa þetta einfalt en ekki að það þurfi að setja lög í hvert skipti þegar nýtt bóluefni kemur. Ef það á að endurskoða þetta þá setjum við það vonandi inn þannig að við þurfum ekki að koma með eitthvað svona sér aftur og aftur.