153. löggjafarþing — 39. fundur,  29. nóv. 2022.

veiðigjald.

490. mál
[16:24]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég tek undir með þingmanninum, þetta er minn skilningur líka varðandi fyrri spurninguna, að við séum að dreifa lækkun á veiðigjaldinu, þeirri upphæð, á fimm ár. Varðandi síðari spurninguna, sem er svona frekar tæknileg útfærsla á þessu lagafrumvarpi, er það minn skilningur að hér sé um að ræða flutning og breytingu úr 50 í 20 plús 200 milljónir á fyrningum sem eiga sér stað árin 2021 og 2022. Það er bara verið að tala um þessi tvö ár varðandi þessar breytingar. Eftir þessi tvö ár þá er bara um almennar fyrningar að ræða samkvæmt lögum um tekjuskatt, eins og ég skil málið.