fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér hefur fundist það mjög áhugavert, ég veit ekki hvort það er rétta orðið, eða mjög sérstakt að upplifa það í nefndum þingsins aftur og aftur hvernig aðgengi að gögnum getur verið. Mér finnst ég líka hafa uppgötvað ákveðinn sannleika við þetta tregðulögmál, þ.e. að gögn sem eru ekki endilega hliðholl stjórnvöldum geta verið lengur að berast en önnur. Þetta er svona partítilgáta hjá mér. Í fjárlaganefnd, rétt eins og í umhverfis- og samgöngunefnd, er það áberandi að fyrir þá þingmenn sem hafa áhuga á grænum fjárfestingum, á því að fjárfest sé í þágu loftslagsmarkmiða, að tekin séu markviss skref í þágu loftslagsmarkmiða, er erfitt að fá yfirsýn um stöðu mála. Það hindrar okkur auðvitað í að ná þeim árangri sem að er stefnt (Forseti hringir.) þannig að einhver opnun þarna eða eitthvert bókhald myndi sannarlega létta okkur lífið.