Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:22]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði er sneri að fundarstjórn forseta, sem var að það liggur fyrir að skýrsluumræðan hefur ekki verið leidd til lykta. Þetta hefur verið rætt á a.m.k. tveimur fundum þingflokksformanna með forseta svo ég muni til, fyrir utan að það er einn og hálfur mánuður síðan þessi umræða fór af stað, eins og komið hefur verið inn á. Því væri ég til í að fá aðeins nákvæmari tímasetningu frá hæstv. forseta en „þegar rými gefst til“, ef ég man orð hæstv. forseta rétt, þar sem það gæti þýtt nokkurn veginn hvað sem er.