153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:10]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Já, enn þá erum við á tekjuhliðinni vegna þess að það er jú svigrúm sums staðar í samfélaginu, annars staðar ekki. Í fyrra var það þannig að 54% af þeim nýja auð sem varð til í fyrra lentu hjá ríkustu tíund landsmanna. 57% hækkun varð milli ára í fjármagnstekjum. Þessi tillaga hér gengur út á það að hækka fjármagnstekjuskatt úr 22% í 25% sem lendir einvörðungu á efstu tíund landsmanna. Þetta skilar jafn hárri ef ekki hærri upphæð en á að sækja með almennum flötum krónutölugjöldum til almennings. Þetta skilar líka því að við værum með því að leggja byrðar á breiðu bökin þar sem kaupmáttaraukning var tvöföld ef ekki þreföld miðað við restina af fólki. Þetta væri sanngjörn hagstjórn. Þetta væri góð hagstjórn og það er engin ástæða til að fella þessa tillögu en vera svo tilbúin að samþykkja tillögur sem auka gjöld á almenning.