153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Þó svo að ég telji að eitthvað sé að í stærðfræðinni þá langar mig að fagna því að meiri hluti fjárlaganefndar velur að draga aukinn stuðning við Úkraínu út fyrir þau 0,35% sem almennt er miðað við. Þetta er mikilvægt vegna þess að það er verið að draga þetta af á þessu ári, lækkar um nær milljarð. Það er einnig mikilvægt að gera þetta vegna þess að það er aukin þörf. Það er aukið hungur, aukin þörf fyrir þróunarsamvinnu og þróunaraðstoð þannig að við þurfum að bæta þarna í. Og að lokum langar mig að hvetja stjórnvöld til þess að gera áætlun um að hækka þetta úr 0,35% á næsta ári um alla vega 0,1% á ári eða meira.