153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[14:55]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Hér geta hv. þingmenn lögfest endurskoðunarákvæði í það frumvarp sem hér er til afgreiðslu. Slíkt endurskoðunarákvæði er algjörlega útlátalaust af hálfu meiri hlutans hér á Alþingi og í rauninni bæði skynsamleg og eðlileg ráðstöfun í ljósi þeirra miklu breytinga sem hér er verið að gera á vinnuumhverfi leigubifreiðastjóra og með þeirri óvissu sem hér skapast um ákveðin réttindamál og réttindi á vinnumarkaði. Í rauninni gæti ég lesið upp textann úr áliti meiri hlutans sem styður í öllum atriðum að við lögfestum endurskoðunina vegna þess að löggjafinn setur lögin, framkvæmdarvaldið framkvæmir þau og svo hefur löggjafinn eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Þess vegna segjum við já.