153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[17:48]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er um að ræða frumvarp um breytingu á lögum sem hæstv. núverandi forsætisráðherra átti veg og vanda að á sínum tíma og mörkuðu ákveðin tímamót, fólu í sér mikla framsýni og umbætur og ég hef oft þakkað hæstv. ráðherra fyrir það. Með þessu frumvarpi er að miklu leyti klippt á virkni þessara laga. Rökstuðninginn skil ég, ég hef sýnt honum skilning í umræðu um málið en ég tel að það sé hægt með mjög smávægilegri breytingu að laga þetta til mikilla muna og ná fram þeim áhrifum sem sóst er eftir án þess að valda því tjóni sem ella gæti orðið. Því legg ég fram breytingartillögu sem ég mun rökstyðja hér á eftir þegar hún kemur fram sem ætti vonandi að vera til þess fallin að allir gætu náð sátt um niðurstöðu í málinu.