153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[17:49]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Breytingartillagan felst í því að í stað þess að hætta virkni laganna strax á næsta ári og þar með vernd bygginga sem voru reistar eftir 1923, færist árið fram til 1930. Þar með náum við inn húsum sem voru byggð á tímabili sem kalla má gullöld íslenskrar steinsteypuklassíkur. Það er vel hægt að rökstyðja það að sú byggingarlist hafi verið mesta framlag Íslendinga til byggingarlistar almennt. Íslendingar voru fljótir að tileinka sér steinsteypuna og byggðu hér hús úr steinsteypu í barrokkstíl, nýklassískum og sögulegum stíl og þar fram eftir götunum. Á Íslandi kom saman gamli klassíski stíllinn í byggingarlist og steinsteypan og í nokkur ár varð til hin einstaki stíll sem einkennir marga af gömlu bæjunum og borgunum í landinu. Það væri mikil synd ef þetta mikilvæga og fallega tímabil væri ekki verndað.