framhaldsfundir Alþingis.
Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra góðar óskir í garð okkar alþingismanna. Jafnframt býð ég hv. alþingismenn velkomna til þingfunda á ný eftir jólahlé en þeir hafa verið við nefndastörf í síðustu viku eins og kunnugt er.
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti fyrir hönd Alþingis og alþingismanna senda Vestmannaeyingum góðar kveðjur á þessum degi en liðin eru 50 ár frá því að jarðeldarnir hófust í Heimaey. Þeir röskuðu verulega byggð í Eyjum og höfðu víðtæk áhrif í þjóðfélaginu. Öll sú mikla saga er okkur sífelld áminning um hve samstaða þjóðar er mikilvæg þegar á bjátar og áföll eða hamfarir verða.