153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:01]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Þetta er mjög góð spurning. Þó að við nálgumst þetta kannski aðeins hvort úr sinni áttinni þá held ég að það sé ískyggilega mikið til í þessu hjá hv. þingmanni. Fyrst aðeins varðandi undanþágurnar: Þar er, held ég, verið að búa til dálítið hættulega hvata í sumum tilvikum, og ég mun koma inn á það í seinni ræðu. Með þetta ákvæði, hvort það hafi áhrif, hvort það muni raunverulega hafa áhrif, þegar svarið er, eins og hv. þingmaður segir, að fólk eigi bara að fara, þá finnst mér ólíklegt að þetta hafi mjög veruleg áhrif og mér finnst í raun ólíklegt að þetta frumvarp í heild hafi mjög veruleg áhrif. Ég velti því jafnvel fyrir mér hvort það sé bara verið að auka enn á flækjurnar með þessu. Það er spurning hvort það er þess virði yfir höfuð að styðja þetta úr því sem komið er. En í þessu atriði og allt of mörgum öðrum þá óttast ég að þetta muni ekki hafa tilætluð áhrif.