útlendingar.
Frú forseti. Aftur að sagnfræðilegu yfirliti yfir breytingar á útlendingalögum sem ég var aðeins að tæpa á hér áðan. Ég er nú ekki að segja hæstv. forseta nein tíðindi hér þar sem hún sat hér á þingi á þeim tíma, en fyrir hina í salnum er kannski ágætt að fara yfir þetta.
Myndin sem var farin að teikna sig upp var sú að t.d. þegar frumvarpið sem varð að lögum 80/2016, heildarendurskoðun á útlendingalögunum, var í meðferð þingsins þá kom á síðustu metrunum fram breytingartillaga frá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki sem Píratar og Vinstri græn gátu ekki stutt þar sem hún var ekki í samræmi við það samkomulag sem var um frumvarpið. Síðan rétt fyrir jól 2016 kemur inn bráðabirgðaákvæði um að kæra fresti ekki réttaráhrifum brottvísunar í bersýnilega tilhæfulausum umsóknum frá öruggum ríkjum. Aftur sátu fulltrúar Pírata og Vinstri grænna hér í sal hjá í þetta skiptið vegna þess að þarna var raunverulegt skref aftur á bak varðandi réttindi fólks á flótta. Þarna var verið að hafa af þeim möguleikann á raunverulegri lausn sinna mála. Það er erfitt að sækja réttlætið þegar það er búið að sparka þér úr landi. Síðan teiknaðist svipuð mynd upp stuttu eftir áramót, í byrjun árs 2017, þar sem dómsmálaráðherra lagði til ákvæði um að kæra fresti ekki réttaráhrifum í þessum tilvikum, yrði ekki bráðabirgðaákvæði eins og það var upphaflega sett inn heldur sem varanleg viðbót við lögin.
Þá stígum við kannski fyrsta stóra skrefið frá mannúðarmyndinni sem átti að teikna með heildarendurskoðuninni. Þar eru þrír flokkar sem standa ekki að þessari breytingu, það eru Píratar, Vinstri græn og Samfylking sem sitja hjá við afgreiðslu málsins. Þau láta sér nægja að sitja hjá þar sem frumvarpinu fylgdi jafnframt ívilnandi leiðrétting eða það var kannski frekar verið að skýra út lagaákvæði sem Útlendingastofnun hafði ákveðið að túlka á versta veg þannig að í framkvæmd var allt í einu farið að herða reglurnar gagnvart ákveðnum hópi sem sótti hér dvalarleyfi og þingið ákvað að skerpa á lagatextanum þannig að það væri alveg ljóst að hann væri rýmri en Útlendingastofnun hefði túlkað hana í framkvæmd.
Aftur sjáum við, forseti, að þarna eru flokkar sem teikna sig upp nokkuð samstiga í breytingum, styðja ekki neikvæðar breytingar. Síðan kom leiðrétting um mitt ár 2017, lög nr. 54/2017, þar sem ákvæði um skiptinema hafði ekki færst rétt yfir á milli laga. Þar vorum við öll græn hér í sal. En svo fór að syrta í álinn með frumvarpinu sem varð að lögum nr. 81/2017, lagt fram af Katrínu Jakobsdóttur og formönnum allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins sem hluti af samkomulagi um þinglok eftir að ríkisstjórnin féll og boðað var til kosninga. Þá vorum við sammála um það að ná utan um hóp barna á flótta sem höfðu verið mjög lengi í landinu. Málsmeðferðartíminn var orðinn það langur að það var varla réttlætanlegt annað en að taka mál þeirra til efnismeðferðar og úr varð að allir flokkar hér í sal studdu þetta frumvarp nema Sjálfstæðisflokkurinn. Það eru ákveðnir pólar sem teiknast upp; fólkið sem styður ekki íþyngjandi breytingar og Sjálfstæðisflokkurinn sem styður ekki ívilnandi breytingar. Ég held áfram aðeins eftir.