aðgerðir stjórnvalda í þágu tekjulágra.
Virðulegur forseti. Það er með nokkrum ólíkindum að hlusta á þennan málflutning. Ég velti svolítið fyrir mér í hvaða veruleika hæstv. ráðherra lifir. Segir það hæstv. ráðherra ekki neitt að nú fer ójöfnuður vaxandi samkvæmt Gini-mælingum á Íslandi, að æ fleiri heimili eiga erfitt með að ná endum saman samkvæmt könnunum, að æ fleiri heimili eru rekin á yfirdrætti? Segir það hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra ekki neitt að ráðstöfunartekjur jukust þrisvar sinnum meira hjá tekjuhæstu 10% landsmanna árið 2021 en hjá öðrum tekjuhópum? Er þetta í alvörunni til marks um að hér sé við völd ríkisstjórn sem er að jafna byrðarnar? Þetta er brandari. Hér er minnst á húsnæðisbætur en höfum það í huga að við höfum enga tryggingu fyrir því að þær skili sér raunverulega til leigjenda meðan ríkisstjórnin heykist á því að setja hér leigubremsu og frysta hækkun leiguverðs eins og hefur verið gert svo víða, m.a. í Skotlandi og Danmörku. Ríkisstjórnin hefur misst tökin á stjórn efnahagsmála. (Forseti hringir.) Hún var löngu búin að missa stjórn á velferðarmálunum með því að vanrækja innviðina okkar, tilfærslukerfin og almannaþjónustuna. (Forseti hringir.) Þegar þetta kemur saman þá er kannski ekkert skrýtið að ófriður sé á vinnumarkaði, en hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bregðast við? (Forseti hringir.) Ætlar hann ekki að koma með neitt efnislegt innlegg? Hefur hann ekkert svar við því?