153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

487. mál
[13:37]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ágæti þingheimur. Ég kem hér upp til að þakka utanríkismálanefnd fyrir gott starf og góða vinnu á undanförnum vikum og mánuðum við að fara yfir þjóðaröryggisstefnu landsins og stöðuna sem við höfum þar undir. Við erum með nokkrar breytingar þar, reyndar veigalitlar en samt mikilvægar. Þjóðaröryggisstefnan hefur sannarlega sannað gildi sitt og sú uppfærsla sem var lögð til í því sem við fengum í hendur hefur líka gert hana enn betri. Ég tel gríðarlega mikilvægt að nefndin sem slík skuli hafa náð sameiginlegri niðurstöðu, að við skulum öll hafa verið á áliti nefndarinnar og þannig undirstrikað þá samstöðu sem við þurfum og eigum að sýna á slíkum tímum sem við lifum í dag. Ég vil þakka nefndinni (Forseti hringir.) fyrir þá samstöðu og í ljósi þessa sé ég ekki ástæðu til að gera frekari breytingar á því sem nefndin sem heild hefur lagt fram fyrir sitt leyti. Ég mun því ekki styðja breytingar við þá stefnu sem fyrir liggur.