153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

[17:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þessi fyrirspurn er aðeins annars eðlis. Í lögum um ríkisendurskoðanda segir að ríkisendurskoðandi starfi á vegum Alþingis, sé trúnaðarmaður þess og ábyrgur gagnvart Alþingi. Fyrirspurn mín snýst í raun um ákveðna túlkun á lögum um ríkisendurskoðanda. Ég er að reyna að spyrja stjórnsýslu Alþingis um þessa lagatúlkun sem ríkisendurskoðandi ætti í raun að svara. En út af því hvernig þessi títtnefnda grein, sem vísað er í, er einhvern veginn að koma í veg fyrir að það sé hægt, þá eru ákveðin vafamál í gangi. Mér finnst að ég ætti að geta spurt um þessa fyrirspurn en þingskapalögin koma einhvern veginn í veg fyrir það. Við erum bæði með þetta ákvæði í lögum um ríkisendurskoðanda, þar sem hann ætti að vera ábyrgur gagnvart Alþingi, sem bendir til þess að ég ætti að geta spurt þessarar fyrirspurnar, og síðan þingskapalögin sem, þegar þau voru sett varðandi upplýsingalögin, voru gerð til þess að virkja upplýsingalög gagnvart stjórnsýslu þingsins, ekki til þess að koma í veg fyrir það að hægt sé að bera fram fyrirspurn á borð við þessa til ríkisendurskoðanda. En þarna er uppi ákveðinn vafi (Forseti hringir.) sem þýðir, af því að ég er líka formalisti, að ég sit hjá við þessa atkvæðagreiðslu.