Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[15:31]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessi svör þó að þau hefðu mátt vera aðeins ítarlegri. Mér fannst skýringar á þessu samráðsleysi ekki koma fram. En mig langaði að bera upp aðra spurningu og hún er í kjölfar þess að einn af höfundum aflareglunnar, í endurskoðun hennar, lýsti því yfir, á fundi sem við vorum bæði á fyrr í vikunni, að aflareglan eða þessi ráðgjöf, bóndabeygjan sem búið er að setja ráðherra í, væri ekki að ganga upp. Það væri eitt og annað sem væri augljóst — í raun á hvaða fábjáni sem er að sjá að hún er ekki að ganga upp. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort hún trúi því að hægt sé að ofveiða fiskstofna með krókum, handfæraveiðum. Telur hæstv. ráðherra að fiskur sem t.d. er veiddur við Grímsey — að það sé eitthvert vit í því að draga hann frá einhverju sem má veiða inni á Breiðafirði?