153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:16]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú svo að þetta var einfaldlega á síðu Innherja á vísi.is þar sem var fjallað um hv. varaþingmann Sjálfstæðisflokksins og einn helsta trúnaðarmann núverandi fjármálaráðherra og sagt frá því að hann væri pólitískur ráðgjafi hvað varðar sameiningu fyrirtækis sem hugðist leggja sæstreng frá Straumsvík og alla leið til Bretlands. Þannig var það nú. Ég tel rétt að hæstv. ráðherra grennslist fyrir um þetta mál. En engu að síður þá finnst mér þetta kjánalegt, þetta markaðsfyrirkomulag hjá ríkisfyrirtækjum, það er verið að máta sig inn í evrópskt samkeppnisumhverfi hér á þessari litlu eyju þar sem búa rétt um 400.000 manns og meira og minna af þessari raforku er selt í föstum samningum. Jú, gott og vel. Menn skrifuðu undir þessa samninga, (Forseti hringir.) orkupakkana alla, og við sitjum uppi með þetta. En ég tel að ef menn eru að horfa til öryggis þá eigi að skoða aðrar leiðir eins og ég vil nefna hér, Hvalárvirkjun.