auðkenningarleiðir.
Hæstv. forseti. Þetta er mikilvæg umræða, góð fyrirspurn og mikilvæg svör frá hæstv. ráðherra. Ég vil taka undir það að það er mikilvægt að allir geti nýtt sér rafræn skilríki og rafræna auðkenningu þegar það á við. Ég vil leggja áherslu á það, bæði við hæstv. ráðherra og líka þá sem sjá um að hanna slík auðkenni, að hafa algilda hönnun í huga frá byrjun til þess að ólíkir hópar geti nýtt sér lausnina frá upphafi. En það eru fleiri hópar sem skiptir máli að hugað sé að. Einn af þeim hópum sem hefur stundum lent í vandræðum með að fá rafræn skilríki er fólk sem hingað kemur og er ekki með gild persónuskilríki. Þeirra leið að því að fá rafræn auðkenni hefur (Forseti hringir.) á tíðum verið gríðarlega flókin og það þarf að huga að þeim málum og sjá til þess að þau fái líka rafræn skilríki.